- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
100

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 100 —

Ljós var leið þín
og lífsfögnuður;
æðra, eilífan
þú öðlast nú.

Oft kvaðstu áður
óskarómi
heimfýsnar-ljóðin
hugum þekku;
vertu nú sjálfur
á sælli stund
farinn í friði
til föðurhúsa.

YIÐ JARÐARFÖR JÓNS SIGHVATSSONAR.

Dýrðlegt er að sjá,
eftir dag liðinn,
haustsól brosandi
í hafið renna;
hnígur hún hóglega
og hauður kveður
friðar-kossi,
og á fjöllum sezt.

Stíga þá stjörnur,
stórmargur her,
alskærar upp
af austur-straumum,
blysum blikandi
um boga heiðan
salar sólheima
á svalri nóttu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0110.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free