Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 101 —
Vaka þær og vaka
og veralda fjöld
sáu og sjá munu,
systur álfröðuls;
sofnar ei og sofnar ei,
þótt sígi til viðar,
sælust dagstjarna, —
sést hún enn að morgni.
Svo er um ævi
öldung-manna
sem um
sumar-sól fram runna;
hníga þeir á haustkvöldi
hérvistar-dags
hóglega og blíðlega
fyrir hafsbrún dauða.
Vaka þá og skína
á vonar-himni
alskærar stjörnur,
anda leiðtogar:
traust og trú
og tryggrar speki
augað ólygna,
og andarnir lifa!
Gráti þvi hjer enginn
göfugan föður,
harmi því hér enginn
höfðingja liðinn;
fagur var hans lifsdagur,
en fegri er upp runninn
dýrðar-dagur hans
hjá drottni lifanda.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>