- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
121

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 121 —

Viti menn, að vogameyjar
vondar sizt eru draugaskottur;
sat hjá henni í síðum klæðum
séra Jón minn píslarvottur.

Sungu þau bæði sætt og lengi,
svo mér yndi var að heyra;
lagið var sem lagargjálfur,
lagði eg við það sólgið eyra.

Þar var margt um Tyrkjann talað;
tókst svo bæn, — sem nú er vandi
„Vísaðu leið og flyttu, faðir,
friðsamlega sjófarandi".

Byssumaður, í bragði dimmur,
bjóst þá til að skjóta í leyni;
selir honum sýndust móka
Sigmundar á votum steini.

Um þat5 var svo kveðiti:

Selur sefur á steini,
svartur á brún og brá,
dindill aftan á. —
Maður lá í leyni.

Höfuðið hæfa vildi,
hokinn bak við stein
skaut og hátt við hrein
gæfumaðurinn gildi.

Haldið þið ekki hann hitti?
Hinn fór samt á stað,
er kúlan kom honum að —
á dindilinn frá eg hún dytti.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0131.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free