- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
122

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 122 —
ANNES OG EYJAR.

Meö motto:

„Hann er farinn aö laga sig- eftir Heine".

1. ÓLAFSVÍKURENNI.

Ríðum við fram um flæði
flúðar á milli og gráðs
fyrir Ólafsvíkurenni
utan við kjálka láðs.

Fjörðurinn bjartur og breiður
blikar á aðra hlið,
tólf vikur fullar að tölu, —
tvær álnir hina við.

Hvort á nú heldur að halda
í hamarinn svartan inn,
ellegar út betur — til þín,
Eggert, kunningi minn?

2. HORNBJARG.

Yzt á Hornströndum heitir
Hornbjarg og Kópatjörn;
þeir vita það fyrir vestan,
þar verpir hvítur örn.*)

Um sumarnótt, er sveimar
sól yfir norðurslóð
og þoka sígur um sjóinn,
hann situr rauður sem blóð.

*) Svo seg’ir Jón læröi: Á mínum dögum hefur hvltur örn

verpt etc.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0132.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free