- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
124

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 124 —

Ömurlegt allt mér þykir
útnorður langt í sjá;
beinin hvítna þar beggja
bræðranna klettinum á.

5. MÁNEY.

Ég uni mér ekki úti í Máney,
og er hún þó skemmtileg;
brimaldan ber þar og lemur
bjargið á annan veg.

Og hins vegar ungar hrjóta
úr hreiðrum með nef og stél,
og eggin velta öll o’n í grjótið,
af því hún hristist svo vel.

Ég uni mér ekki út í Máney
(og á þó að dveljast hér),
því ég er bringu-brotinn, —
úr bjarginu hrundi að mrr.

6. SKRÚDURINN.

Austast fyrir öllu landi
af einhverjum veit ég stað,
fjalleyju grænni og góðri,
getið þér, hver muni það.

Hún heitir Skrúður, og skýlir
skrúðsbónda, öldnum hal;
úti fyrir Fáskrúðsfirði
þú finnur það eyjarval.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0134.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free