- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
123

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 123 —

Og örninn lítur ekki
o’n á hið dimma haf,
og horfir í himinljómann*) ; —
hafskipið sökkur í kaí.

3. DRANGEY.

Tíbrá frá Tindastóli
titrar um rastir þrjár;
margt sér á miðjum firði
Mælifellshnúkur blár.

Þar rís Drangey úr djúpi,
dunar af fuglasöng
bjargið, og báðumegin
beljandi hvalaþröng.

Einn gengur hrútur í eynni;
Illugi Bjargi frá
dapur situr daga langa
dauðvona bróður hjá.

4. KOLBEINSEY.

Bræðurnir sigldu báðir
burtu frá ungri mey, •
langt burt frá systur sinni,
að sæk.ja í Kolbeinsey.

Þar er svo dúnað í dúni,
að djankinn liggur þar
bara bráðendis hissa
og breiðir út lappirnar.

*) Coelestem adspicit lucem.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0133.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free