- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
146

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 116 —

inna má; —

svo er vetri vikið frá;

uni fleti

hver, sem getur,
heimskum gærum á. —
Önnur er mín þrá.

LÍKUR SÍNUM.

Allt hef ég af öfum minum,
illt er að vera likur slnum,
annar kvað og annar saup;
ég á að heita barnið beggja,
búinn að stökkva hvorutveggja
grárra manna Grettis-hlaup.

Ólukkinn skal yrkja lengur,
enginn til þess finnur drengur,
og þó miklu minnur fljóð;
ólukkinn skal oftar súpa.
Eg er fótaloðin rjúpa;
plokkið þér mig nú, Gunna góð!

HELVÍTI.

Mér finnst það vera fólsku-gys
að fara niður til helvítis
og eyða aldri sinum
innan-um brennu illan geim,
ólikan drottins sólarheim,
svo hrollir huga minum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0156.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free