- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
147

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 147 —

Skötubarðvængjuð fjanda-fjöld
flaksast þar gegnum eilíft kvöld,
glórir í glóðir rauðar;
þar er ei nema eldur og ís;
allt í helvíti brennur og frýs,
Satan og sálir dauðar.

LEIÐARLJÓÐ

til herra Jóns Sigurðssonar, alþingismanns.

Byr um gráð þig beri
bugþægur, flugnægur;
frói þér á flóa
fundur ísagrundar.
Sjáðu land, er leiðir
ljós um bláa ósa
glöðust sól, og glæðir
Glámutind í vindum.

Tygja þá, og teygja
tá láttu jó gráan,
(hvítur hæfir snotrum
hestur framagesti) ;
móður fyrst og föður
finndu, — svo í skyndi
reið um háar heiðar
hertu slyngur að þingi.

Hygg.jum víst, að vestan
ver ókunnan beri
(járnum jörðu spornar
jór) að klifi stóru;

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0157.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free