- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
163

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 163 —

Fólkið:
Við litlu má gera;
látum svona vera;
þeir ýtast þá með árum
á bárum.

Forsöngvarinn:
Nú eru líka níu menn,
sem nóttina eiga að stytta,
þó varla nokkur viti enn,
hve vænlegt ráð þeir hitta.

FólJcið:
Segðu ekki lengur!
Seinna veit, hvað gengur.
Mættum við fá meira
að heyra!

Forsöngvarinn:
Á einum stað býr einnig fólk,
sem alt af vantar brýni;
það lifir þar á mysu og mjólk,
en mest á brennivíni.

Fólkið:
Æ, hvaða skrambi!
Ætli þeir standi á þambi?
Mættum við fá meira
að heyra!

Forsöngvarinn:
Þar hefir verið sofið sætt,
en sungið nokkru miður,

11*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0173.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free