- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
162

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 162 —

BORÐSÁLMUR.

Forsöngvarinn:
Það er svo margt, ef að er gáð,
sem um er þörf að ræða:
ég held það væri heillaráð
að hætta nú að snæða.

Fólkið:
Heyrið þið snáða!
Hvað er nú til ráða?
Það mun bezt að bíða
og hlýða.

Forsöngvarinn:
Á einum stað býr þrifin þjóð,
með þvegið hár og skjanna,
við húsbændurna holl og góð,
sem hundrai* dæmi sanna.

Fólkið:
Hvað er að tarna?
Hvað sagðirðu þarna?
Mættum við fá meira
að heyra!

Forsöngvarinn:
Mér hefir verið sagt í svip,
að sig hún taki að ygla
og ætli nú að eignast skip,
þótt enginn kunni að sigla.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0172.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free