Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 167 –
en láttu vera líkama minn.
lifandi sálar kroppinn!"
Eg hefi fundið arga kind,
á henni var háðsleg mynd;
það var líkast lús eða synd; —
ég lagði hana i koppinn.
SPARNAÐUR.
Eg er kominn upp á það,
— allra þakka verðast, —
að sitja kyr í sama stað,
og samt að vera að ferðast.
Ef enginn talar orð við þig,
— á það skylduð hlýða! —
þá er að tala við sjálfan sig
og svo er um það að ríða.
VALDI.
Valdi! virztu nú halda
vel mér í stél, séra!
Eg skal gefa þér
afar-ætilegt sælgæti:
lambasteik, svo þér líki,
ljómandi skyr og rjóma,
Valdi! viljirðu halda
vel mér í stél, séra!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>