Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 168 —
MÁLSVÖRN.
Feikna þvaður fram hann bar, —
fallega þó hann vefur!
Lagamaður víst hann var,
varði tófu refur.
UM MOSFELLINGA.
Bóndinn situr á bæjarstétt,
bindur hann reipi, hnýtir hann hnúta;
heyið er upp í sæti sett,
konan ætlar að kaupa sér fyrir það klúta.
SKÁLDIÐ MITT —.
Skáldið mitt var skjótt í leik,
skauzt úr eldhúss brælu
likt sem flygi langt frá reyk
ljóss í veldis sælu.
RÍMNA-STÆLINGAR.
1. meyjar-hjarta.
Yndis bezta elskan mín,
ástum festa baugalín!
Hjartað góða þekki eg þitt,
það er ljóða-efnið mitt.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>