- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
172

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 172 —

hleypir nú í hempuna vindi,
hrökkur út úr kirkjunni í skyndi.

I sama bili er sálmurinn búinn,
situr Keli móður og lúinn;
öllum finnst sem eitthvað sig dreymi,
aldrei meiri þögn varð í heimi.

Djákni fyrstur raknar úr roti,
rann sem mús úr nauðungar-skoti,
fær sér bók og hættir að hrína,
herðir sig með bænina sína.

En á meðan út er að klykkja,
á er komin söguna lykkja. —
Þorkell æpir: ,,Hættu að hringja!
Hef ég ekki lof til að syngja?"

Að svo mæltu aftur hann byrjar,
upp og niður gengur og kyrjar;
flýr þá, eins og fæturnir toga,
fólk, sem stæði kirkjan í loga.

Seinna var hann sóttur í kórinn
(svartur var þá á honum bjórinn)
örendur og oltinn á hnakkann; —
á útgöngu-versinu sprakk hann.

TÍKAR-MANGI.

Tíkar-Mangi! Tíkar-Mangi!
tveir eru hérna menn á gangi,
og eru svona aumir snáðar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0182.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free