- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
180

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 180 —

sparkaði grjótum stinnt með stjá,
slarkaði fótum til og frá!

Klifraðist ég um klettaris
og klungrin hörðu,
leirskálpotta-dyngjudys
á danskri jörðu.

Hvað er dyngja? hermdu mér
í hróðrarblandi;
(öngvir syngja utan vér
á ísalandi!).

Duggálsblossadyngjufress
við clyngjur kúra,
þiggja kossa, kveða vess
og koðrann púra.

Hvað er að púra? hermdu mér;
heimsins skúra nauðsynjar,
því bezt er að lúra gegnum gler
gleði súra hér og hvar.

Margt er fleira úr ferð að segja
furðanlegri;

en nú skalt heyra aðra, eia!
öllu fegri.

Rask að skoða fór eg frjáls
fram á Niðjaleysu.
Þar var Koð og þundur stáls
að þæfa voð í húsi báls.

Báls í húsið brá eg sjónar-tíru;
þar var drós og þornagrér
að þæfa hósur, sýndist mér.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0190.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free