- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
181

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 181 —

Rekkurinn þessi, Rask, var ekki í ranni góðum,
en húsfreyjan með horsklegt æði
heima kúrði fyrir þau bæði.

Höfuðstóran darradör, ef dreng má kalla
ársgamlan, eg sá á svelli
sitja niðrá þúfnavelli.

Málfræðingurinn mælti fátt úr munnagreyi.
Konan heldur Konráð eigi hann,
Kristján heiti og bráðum deyi hann.

Háttalykil hendi

hnísunárafló,

sem að henni sendi

suðrúr Kúrriró

saura-paura-þoku-þór,

skörðóttur í skeggstæðið,

skáldaður á bjór.

HUGNUN.

Nautgæfa fóðurgrasið grær
á leiði móður þinnar þjáðu.
Því ertu hljóður, frændi? Sjáðu,
hvar bóndi góður björg sér fær.

Þúfu, sem slær hann, undir er
sú ein, sem kæran haft þig hefur,
í hjúpi væran dúr hún sefur.
— Heytuggu nær hann handa sér.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0191.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free