Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 190 —
Augun raunar eru þín,
upplitsbjarta stúlkan mín,
hitagler, ef hlýna;
sólargeislum innan-að, —
eg er búinn að reyna það,
safna þau, svo bríma-bað
brennir vini þína.
ÚR KVÆÐI UM VÍKINGAFERÐIR.
R.:
Seg oss lengur sögu;
sælt er á að hlýða
þrautafarir þínar,
þrekverk öll að vita,
meðan sólin sígur
sæl í djúpar unnir
og á heiðum himni
hvítur lýsir máni.
Å.:
Skemmtir það litlu lambi,
líti það varga bítast?
R.:
Ojú, Ásmundur,
ef það stendur
óhult innangarðs.
óhultur nú
héðan af ertu,
því héztu mér,
aldrei að velkjast
í víkingu framar.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>