- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
232

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 232 —
UPPHAFIÐ AF „ABELS DØD".

EFTIR PR. FALUDAN-MüLLER.

Uppi stóð Kain
og á hlýddi
grama guðs dóma,
glataður, rekinn,
útskúfaður einn
öllum í heimi.
Skalf hann og skarst hann
og skyggndist um,
og á frám fótum
flótta sinn hóf.

En á græna
grundar hvílu
bleikur bróðir
var í blóð hniginn;
Abel að annast
ástúðleg kom
móðir manns sona
mjúkhent sjúkan.

Álengdar hún sá,
að upp lyfti
hjartkærum syni
hennar í móti
heiftar hendi
hárri bróðir;
að kom þar Eva,
er hann öndu sleit.

Farið er fjörvi; —
fagur titrar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0242.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free