Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 233 —
ungur ástarson
andar þungan;
rennur rautt blóð
úr rofnum vanga,
lokki Ijósgulum
lit festir á.
ARNGERÐAR-LJÓÐ.
EPTIR P. L. MÖLLER.
I.
Fædd er eg þar sem fjallatindur
fólgið ylgott hreiður ber,
skjótt inn hvassi hvirfilvindur
hossaði mér i fangi sér;
breiðir og greiðir vængir verða,
væn úr hreiðri móðir sá
mig að fara minna ferða
megni vinda ósamgerða
hátt yfir ský að heiði blá.
Dunaði loft um dökkar fjaðrir,
dimmum stormi fló eg gegn,
sólin há, og engir aðrir,
augna minna glæddi megn;
þekkti eg hættu ei né ótta,
æ á flugi glöð og hlý,
lítið hremmdi eg lamb á flótta,
lyfti þvi upp til sólar-gnótta,
drakk þar barka-blóð úr þvi.
Einhvern daginn ofan fló eg
ilskuramma jörð að sjá;
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>