- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
234

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 234 —

eldur og hvellur — og svo dó eg,
allt varð dimmt, eg féll i dá;
lik hef eg verið lágt á jörðu,
legið í rauðu blóði þar;
vaknaði svo til harma hörðu,
hjarta mitt er sundur mörðu.
Hvi dó eg ei til eilífðar?

Vaknaði eg i hörmum hörðum;
heil var sál, en megni stytt;
hnjúkur minn með hamragörðum!
hvar eru skýin, yndið mitt?
hvert er horfin gleði geima,
góði fjaðurhamurinn?
Eg, er svam um sólarheima,
sit nú, orðin stúlkufeima,
eins og gimbur grannvaxin.

Hrynur mér af höfði niður
hárið sitt og mjúkt og ljóst,
varla þolir veðrahviður
varið lini meyjarbrjóst;
fyrir háan himinboga
hef ég fengið bæ og fjós,
fyrir bláa bergið
troga–búr, og dapran hlóðaloga
fyrir skærust skrugguljós.

II.

ó, að þeir fjötrar aftur brystu!
ó, eg lifði þá sælutið,
að mig vindarnir aftur hristu
eldinga gegnum dyn og strið!
ó, að flugvana fjaðrir spryttu

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0244.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free