Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 282 —
á stað úr Khfn. um miðdegi og nú er varla ein stund
til náttmála, enda hefi ég náð 3 eða 4 dauðum
dýr-um af ættstofni lindýranna, sem ég hefi aldrei áður
séð. Þau sátu föst á kalksteini gráum og fornum,
rétt fyrir utan skemmuna, sem meistari Lindberg
prédikar i. Hvur em eg, að eg liki mér við Lindberg?
— Piltar góðir, þetta ætlar að verða undarleg
sjó-ferð. Ég er búinn að reykja tvær tóbakspipur og
drekka sosem hálfan pela af frönsku brennivíni, en
vindurinn hefir verið á móti mér, so ég er ekki
kom-inn lengra en þetta. Áður en ég fór af stað, taldi
ég í sjóðnum, eins og Hindenburg hefir fyrir mælt.
Þar voru ........................... 3rd. 68 sk.
Þar að auki i pjáturstokki brauð og smér
fyrir .............................. " 18
frakkneskt brennivin fyrir ............. " 16
tóbak fyrir .......................... " 11
tir.nur og tundursvampur fyrir ......... " 2
með öllu og öllu 4rd. 19 sk.
Þetta hafði ég til ferðarinnar og er nú farinn að
eyða af því öllu saman; þegar ég kem í náttstað i
kvöld, skal ég reyna til að virða það og rita ykkur
greinilega, hvað mikið hefir eyðzt. Ég hefi ekkert
séð merkilegt, nema hjólskip mikið og fagurt
(lík-lega svenskt), og mórauðan sauð, islenzkan, sem
stappaði niður fætinum, þegar hann sá mig. Ég hefi
líka reynt að geta mér til, hvað margir faðmar
af eldiviði væru i trjánum á leiðinni, það hafa verið
tveir og þrir faðmar og mest 6 og hálfur, eins og
])ið getið nærri. Ég gleymdi að bera tólg á posteriora,
áður en ég fór á stað. Hvur em eg, að ég líki mér
við Hindenburg?
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>