Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 283 —
Skrifað á Táralæk, 27. Júlí 1836.
Nóttin er liðin, herra, og morgunroðinn ljómar
þarna úti. Ég hefi sofið vært í 4 eða 5 tíma, nema
hvað bræður okkar vöktu mig, svínin á Táralæk,
mikil og feit og gullfallegt búsílag. Sængurkonan
eða konan, sem þjónar mér til sængur, hún er so góð
í sér og viðkunnanleg, að ég get ekki gert gys að
henni í þessum reikningi. Reikningurinn er 36 skl.
með öllu og öllu, mjólk og brauð og sætt kaffi;
stall-meistarinn á Táralæk segir að það sé gott. — 12 skl.
handa Bagge á Bellevue og skammir um landið! Það
var nóg handa honum! So hefi ég séð Markús
guð-spjallamann og undarlegan kola í fjörunni, en hafði
ekki tíma til að kryfja hann.
Geologisk Excursion, safnað steinum og skeljum
og skoðaðir bakkarnir frá Táralæk og út undir
Strandmyllu. Galerites albogalerus í mergillagi fyrir
ofan bláleirinn.
Strandmyllan er hefðarhús;
hriktir þar allt og skrjáfar;
ég sá fló og færilús
á fuglinum honum Láfa.
„Du slaaer ikke 4—5 Kegler!" sagði Ólafur; „þú
hnekkir trauðlega 7 ballarstrýtum í högginu", sagði
ég. Þá kom hugur í báða og fórum að hnekkja
strýt-unum; — einn skl. fyrir höggið, og sona vann ég 42.
Því næst át ég sauðarkjamma og blóðrauðan graut
hjá Þórði mínum Daníelssyni, horfði yfir landið og
sjóinn, sá pappírinn verða til, — að ógleymdri
fjölinni, sem álabörnin skríða á. Strandmyllan er
hefðarhús, hriktir }>ar alt og skrjáfar!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>