Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 286 —
Ólafur stólar upp á Borg*)
Ég hefi reynt til að ná 1 jómfrú Lichtenstein, en það
var ekki hægt.
Sólin upprunnin er
á austursíðu,
fjalltinda forgyller,
með hálsahlíðum.
Fjalltindarnir eru turnarnir hérna í Baksverði,
(|)ví nú er ég hér kominn) og hálsahlíðarnar, þær
eru líklega rassinn á vertinum, sem stendur
álengd-ar og snýr að mér bakinu, en gefur mér samt auga
við og við, af því hann sér ég er að rita í
dagbók-ina mína. Hindenburg segir, að króarvertum sé ekki
um það. Þetta er um morguninn 29. júlí. Ég hefi
ekki komið því við, að skrifa neitt fyrr en hér. —
So ég víki aftur til Friðriksborgar, þá skoðaði ég
borgina utan vel og vandlega. Utan! Aumur maður,
komst ekki inn fyrir peningaleysinu. So spurði ég
mig fyrir um kalknámurnar og fór af stað.
Lítill jarðfræðingur 4 vetra og mjólkin hans
Povelsens. Upplýsingar um herra Ulriksen. Ég gekk
nefnilega sama veg og ég kom, gegnum
„Prestevan-gen" og „Frederiksborg-Dyrehave" til Paulsens,
skóg-arfógetans. Þaðan gegn um Lilleröd til Lynge og
á króna til Madömu Andersen, því maðurinn var
ekki heima; brauð og brennivín og kaffe fyrir 18
*) Crediten leve!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>