Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 285 —
Friðriksborg 28. júlí um morguninn. Þetta er
undarleg sjóferð, piltar góðir! Ég er nú á ferðinni
til Salthólms, so það er ekki að kynja, þó ég væri
votur eins og skolaköttur, þegar ég kom hingað í
gærkvöldi. Ég ætlaði að finna herra Ulriksen, en
villtist inn í sjónarleikahúsið hans herra Bekkers.
Þar var verið að ljúka við „Kotzebues Mord,
Mi-misk-plastisk Forestilling i 12 Billeder". Guð sé oss
næstur! Ég hefi sofið í alla nótt og hér er falleg
stelpa, en ég hefi ekkert að kalla getað talað við
hana. Nú fer ég að borða árbitann minn og so að
skoða bæinn. Veðrið er mesta óhræsi.
Veðrið er að skána, ég er búinn að borða og
herra Ulriksen hefir fengið hjá mér 85 skl. Það
var of mikið handa hönum og nóg handa mér. Nú
fer ég að skoða bæinn, og þyrfti þó, ef vel væri, að
bíða dál’tið enn, til að erta herra Ulriksen, hann er
hræddur um konuna sína eins og ég væri tigris
aspera Gaetulusve leo, síðan hann heyrði ég væri
is-lendingur. Ólafur karlinn mun hafa hvekkt hann,
vesaling. Konan er hér um bil 17 vetra, litil og
snyrtileg og glaðleg; ég uppgötvaði hana i morgun i
eldhúsinu. Múrmeistarinn segir um ólaf vorn „han
rendte bestandig her over til os; — det er en munter
Herre, den samme Johnsen; hils ham ellers meget
flittig fra mig, naar de kommer til Kjøbenhavn."
ólafur sjóli einn i borg
alla verta þreytir.
Ólafur rólar einn um torg
Afmors kerta beitir,
Ólafur tóla einn með dorg
æðir i sterta leitir,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>