- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
288

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 288 —

hafi lifað. Meðallagi vinnukonur, tevatn, brauð og
brennivín. Jómfrúin og Øretvisten.

Undur og skelfing! Voldugur frúkostur og
hesta-læknir, manna mestur og kátastur, að skemmta mér.
Hann minntist á Magnús Hákonarson, fullur af
lotn-ingu, og segir, að þá hafi sér verið mest skemmt á
ævi sinni, þegar Magnús hafi verið að hvolfa úr
herra Sörensen. „Han vendte ham, Gud straffe mig,
saa pænt, at det var en Lyst at se paa".
Reikning-urinn minn er 1 rd. og 5 skl., með tóbaki fyrir 6 skl.
Guð sé oss næstur! og þó veit ég ekki, hvurt það
er of mikið. Þetta er undarleg sjóferð, piltar góðir!.
Ég er nú á ferðinni til Salthólma.

Fjárkonu hjá —
fjárkonu hjá

«8 cpaga au,

ekki munu það allir fá;
illt er mér í stóru-tá,
ég ligg á legustóli,

hann er so rauður, hann er so rauður;
hvað það er bágt að vera dauður!
því sætt er að liggja Schäffer hjá
á sona mjúku bóli.

Þetta 1 i g g j a h j á má ekki misskiljast, þvf
það þýðir ekki nema að 1 i g g j a eins og ég lá
um árið, þegar ég stóð í panti, vesalingur.

Ég fór á stað úr Baksverði um dagmál, og
skoð-aði sandgrafirnar fyrir norðan bæinn. Þaðan fór ég
til Friðriksdals og Lyngbæjar, þaðan til
Jægers-borgar og Ordrups, og drakk á leiðinni mjólk og
rommblöndu fyrir 10 skl. Á þessari leið talaði ég við
nokkura bændur um vegabæturnar. Þeir mega hafa

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0298.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free