- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
289

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 289 —

á spöðunum og mæta með hesta og vagn, hvur
aum-inginn 8—12 daga á ári, eftir því sem þeir sögðu
mér.

„Ormurinn kemur, — ekki má!" hér koma
bölv-aðir gestir, so ég verð að fara á fætur og hætta að
skrifa og reykja, og nú hefi ég ekkert að gera, nema
ef það skyldi vera að skoða gatið, sem þjófarnir
skáru á tjaldið hans herra Nielsens í nótti var. Þá
var Ari of fjærri að gæta tjaldsins. Madama
Schäf-fer hefir nálgazt hund, og lætur hann vera í sínu
tjaldi, so enginn grandar því eða neinu, sem hún á.
— Hvur em eg, að ég líki mér við madömu Schäffer?
(Kaffi 10 skl.).

Þarf eg einn að arka
á utanfótar-jarka
yfir leið [og laut],
þó að blöðrur bláar
á belli minnar táar
kenni kvala[-þr]aut.

Laufin gr[ænu gróa]
og grösin [út um móa] ;
háar eikur [una sér],
og litlar [liljur dey]ja,
låta mig [einan] þreyja,
— ef að [hæli] eg hefði mér.

Bezt er [heim] að halda;
huldar gættir tjalda,
so ekkert úr þeim næst.
[Eg] kann ekki að stela
og illt er mér i bela,
þvi ekkert i hann fæst.

19

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0299.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free