Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 291 —
einfaldlega frá nokkrum viðburðum, sem orðið hafa
í manna minnum og eru svo eftirtektarverðir og að
nokkru leyti svo hryggilegir, að ég vona lesandinn
virði mér til vorkunnar, þó ég hafi i upphafinu
staldrað við nafnið á Hreiðarshól; því þessi
„bústað-ur enna dauðu", hvað sem þeir hafa heitið, er feður
vorir lögðu þar til hvíldar, hann er undarlega riðinn
við forlög þeirra manna, sem mest verða nefndir í
sögunni.
Það var um sumarið 1817 — þegar hið danska
stjórnarráð var búið að lýsa friðhelgi yfir legsteini
Kjartans Ólafssonar, og öðrum fornmenjum á
Is-landi, og verið var að hvetja prestana til, að
grennsl-ast eftir öllu þess konar í sóknum sínum og senda
skýrslur um það til nefndarinnar í Kaupmannahöfn,
sem á að varðveita fornleifar ríkisins —, að farið
var að minnast á Hreiðarshól, og hvort það myndi
vera áræðandi að grafa í hann. Hóllinn stendur í
Grímstaða-landareign, og það var alkunnugt í
sveit-inni, að hinn forni eigandi Grímstaða hafði selt
undan sér jörðina 1783, og dáið rétt á eftir, og um sama
leytið þóttust menn hafa séð vegsummerki, að reynt
hefði verið til að grafa í hauginn; en enginn vissi
meira um þetta efni, né hvernig á því hefði staðið.
Einhvers konar óskýr grunur hafði samt tengt alla
þessa atburði saman, og upp frá þeim degi lék það
orð á, að enginn myndi komast klaklaust af, sem
dirfðist að brjóta Hreiðarshól, og sækja haugbúann
heim eða „vekja Hreiðar undir viðarrótum". Sumir
sögðu um þær mundir, að presturinn í sveitinni
hefði líka snefil af þessari almenningstrú, en sumir
báru á móti því, og kölluðu hann vera hyggnara
prest en svo, að hann hræddist moldir dauðra manna,
en gátu hins til, að honum myndi ]iykja of mikil
fyrirhöfn og tímatöf, að grafa sundur hóla. og fá
19*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>