Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
svo ekkert í ómakslaun, nema, þegar bezt léti,
af-gamla öxi eða ryðgað sverð, er varla yrði notað í
tálguhníf. Mér þykir samt líkast til, að hvorugir
þessara manna hafi verið svo heppnir að geta sér rétt
til um, af hverju presturinn hafi ekki viljað låta
ónáða Hreiðarshól. Þetta ræð ég af ýmsum atvikum,
sem getið skal verða seinna, þar sem bezt á við. En
skjátlist mér í þessu efni, þá er samt eftir að vita,
hvort aðrir hvorir hinna hafa rétt fyrir sér að
held-ur; að minnsta kosti þykir mér líklegt, að hafi
presturinn verið „hygginn", eins og þeir segja með
ber-um orðum, er geta til þess, að hann hafi séð í
tíma-töfina, þá skjátlist þeim í því, hvað sem öðru líður,
að hann hafi haldið fornleifar vor Islendinga væru
ekki dýrmætari en svo, að þær væru helzt notandi
til að smíða úr þeim eitthvert áhald, til að mynda
hníf eða ljá, því slíka fásinnu get ég varla ætlað
neinum bónda um þessar mundir; miklu fremur býst
ég við, að hver íslendingur, sem annað hvort hefir
nú að varðveita einhvern fornan grip, eða kynni að
eignast hann eftirleiðis, muni meta allt þess háttar
svo sem dýrmætar menjar feðra vorra og þjóðareign,
er ekki má selja úr landi, })ó gull væri í boði, og
því síður glata því eða spilla svo–*).
Veleðla herra stúdíósus!
ástar heilsun.
Nú er einasta efni miðans, að þakka yður fyrir
allt gamalt og gott og góða viðkynning, mér
auð-sýnda, sem ég jafnan vildi minnugur vera til hins
bezta. Fátt er nú í fréttum að segja, utan mína
bæri-lega vellíðan, 1. s. g. Og þó hefði ég ekki núna farið
að tefja mig frá heyinu, ef öngvar væru fréttirnar
*) Hér vantar í söguna.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>