Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 361 —
sjálfum", en Jónas hefir breytt henni i ehr.; 4. 1., aths. nm. hefir
Jónas skrifað sjálfur hjá vísunni. — Mun nú erfitt að gefa
rétta skýring á þessu, og ekki var neinn Sigfús í Suðursveit um
þetta leyti. — A einum bæ á Rangárvöllum (Keldum) hafa
sauðarleggir verið settir saman í garðvegg um langa hríð; er
þarna nú orðinn álitlegur stafli, og er hann hluti af veggnum.
Það kvað hafa átt sér stað víða í Skaftafellssýslu, að stafla
þannig sauðarleggjum. Bæjardyraburstin, sem Jónas á við, kann
að hafa verið hlaðin á sama hátt, úr eintómum sauðarleggjum,
eða þeim staflað í burst upp yfir bæjardyrnar.
8. RÉTTARVATN. — Arnarvatnshæðir eru sunnan-við
Arnarvatn, á Arnarvatnsheiði, og liggur Norðlingavegur um
þær. Jónas mun hafa farið þar um á skólaárum sínum. Þegar
hann fór norður sumarið 1828, hefir hann farið þar um, sbr.
„Ferðalok" og aths. á bls. 323. Þegar hann fór norður seint í
Ágústmánuði 1837, fór hann þar um (sbr. III. b., bls. 59 og 287).
Þegar hann reið að norðan sumarið 1841 og fór upp á
Mælifells-dal, 18. Sept. (sbr. aths. við 3. kvæði, Drangey, bls. 357), :cór
hann hér um í síðasta sinn; 19. Sept. hélt hann að Sauðafelli
og næsta dag um Stóra-sand að Réttarvatni. — í vasakveri hans
frá ferðinni er mynd, sem hann hefir þá dregið upp, af
Jökul-króknum og Eiríksjökli (sjá III. b., bls. 203). Eiríksjökull er um
10 km. fyrir sunnan vatnið.*) — í 1. er., 2. 1., hefir Jónas
’jtrik-að út „fáki" í K. G. 31 a og skrifað með blýanti „klári" yfir, en
það hefir ekki verið farið eftir því í 1.—3. útg. né hér. — 2. er.
Með orðinu „norður-ásnum" á Jónas við Svörtu-hæð, er nefnist
svo (eða fyrir norðan Svart(a)-hæð og fyrir sunnan stundum
Svartarhæð); Hvannamór er sunnan-undir henni, og lækurinn.
9. HESTKLETTUR. — Jónas á hér við kláfferjuna við
Hestaklett (svo heitir hann nú) hjá Flatatungu í Skagafirði.
„Jón í Tungu" mun vera Jón Sveinsson, sem þar var
vinnumað-ur fram til 1840, eða þar um bil. Jónas mun hafa farið hér um
á ferðum sínum norður og norðan, þegar hann fór Sand, ef til
vill í síðustu ferðinni (sjá aths. við næstu vísur á undan), þá
fór hann frá Flugumýri 17. Sept. að Mælifelli. — Þessi „ás"
hinumegin (þ. e. að vestanverðu) við árgljúfrin („bessa geil")
hefir verið úr tré. Nú er þar hlaðinn stór steinstöpull, og hefir
sennilega verið þá jafnframt.
*) Sjá um Arnarvatnshæöir og Arnarvatnsheiöi ritgerS
Krist-leifs Þorsteinssonar i Andv., LVIII., 65—80, og enn fremur Árbók
hins íslenzka Fornleifafélags 1933—1936, bls. 49—56 og 125—131,
os’ Þorv. Thoroddsen, FerSabóks IV., 93—94.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>