- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
377

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 377 —

vera frá fyrri árum Jónasar í Rv. — I ehr. eru þessi orð
undir-strikuð: í 1. er. „svarta skóna", „þá", í 2. er.
"„bombasessu"-kjólinn", og í 3. er. 3. 1. (nema orðið „fyrst") og 4. 1. í 2. er., 1.
1., hefir Jónas skrifað fyrst „skipast ei við", en strikað yfir 1.
og 3. orðið og skrifað „mýkist" og „á" fyrir ofan. Á sama hátt
er breytt „hjálpa" í 3. er., 5. 1., í „heppnast". -—• Ekki í 1.—3.
útg. — ,,Bombasessu"-kjóll, þ. e. kjóll úr „bombazet" (sbr.
„bom-basin" o g „bommesi"), sem er eins konar vefnaður.

Bls. 158—160. — TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR. —
Ehr. í Lbs. 1065, 4to, frumritið, sem er sendibréf, ljóðabréf frá
Jónasi til Brynjólfs; því stendur utan-á: „B. Peturs[s]on / 150",
og undir síðustu vísunni „Reg". (þ. e. Regensen), „7. Nov. 1835",
og að því er virðist „Adieu", og svo nafnið, „J. Hallgrimstslon".
Talan 150 mun merkja tölumerkið (númerið) á bústað Brynjólfs
og á Jónas við hana í 2. er. Fyrirsögn er engin, en raunar nefnir
Jónas braginn í síðustu 1. 10. er.: „Rímur af Geógnósi". — En
Geognosi er jarðefnafræði. Jónas var farinn að leggja stund á
hana. — Að öðru leyti er 10. er. torskilið, ef til vill rímað rugl.*)
En rímur nefnir hann þetta af því að það er skopstæling af
:dm-um. — „Sauríar", 6. er., 1. 1., Saurier á þýzku og dönsku, nefndir
á latínu Saurii eða dinosauria, trölleðlur, sem steingjörvingar
hafa fundizt af í fornum jarðlögum. -— 18. er., 3. 1., hefir Jónas
fyrst skrifað „óstöðug", en strikað yfir það og skrifað
„ómátt-ug" fyrir aftan.

Bls. 160. — KVEIFAR. — Ehr. í Bmf. 13, fol., skrifað með
blýanti á næst-öftustu síðu kvæðaheftisins þar, fyrirsagnarlaust.
— Mun vera frá fyrri Hafnar-árunum, helzt vetrinum 1836—37,.
þá voru allmikil frost í Danmörku.

Bls. 160. — NIÐURLAGSORÐ ÚR BRÉFI. — Hr. séra
Jónas Brynjólfssonar í Kálfholti, með bréfi hans til Páls
Mel-steds, sbr. aths. við „Skólaglettur", bls. 375. „Niðurlagsorð úr
bréfi til min frá Kaupmannahöfn", skrifar séra Jón, og á eftir
vísunni setur hann þetta, eftir bréfi Jónasar: „Sjáðu þig við
harmagrútnum". — Sbr. prentvilluna alkunnu, „Harmagrútur
Jeremiæ" í biblíunni, sem prentuð var í Hofn 1813
(„Grútar-biblíunni").

Bls. 160—161. — VERZLUNARÓLAGIÐ. — Prentað í aths.
við kvæðið Batteriski syndarinn í 2. útg., bls. 389, og sögð þar
vera ort „við það tækifæri, að franski vísindamaðurinn Xavier

*) Benda má á, aö til eru rlraur, ortar af Bjarna Jónssyni
skálda og séra Hallgrlmi Péturssyni, sem heita „Rímur af
Flores og Leó".

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0387.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free