- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
385

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 385 —

VII., 104-105. - Cuvier er hinn alkunni náttúrufræðingur, George
Cuvier (1769—1831). Í Fjölni, II. árg., II. fl., bls. 3—14, er dálítil
grein um hann og lítil ritgjörð eftir hann, útlögð af Jónasi, „af
eðlisháttum fiskanna", brot úr stóru verki, sjá V. b., bls. 81—93.

Bls. 179. — GAMANVÍSUR TIL BR. P. — Ehr. á lausu
blaði i K. G. 31a (st. ca. 16 X 13,3 cm). Fyrirsögn er fyrir
hvorri visunni um sig, en aftan á blaðinu er, svo sem
utan-áskrift á sendibréfi: Til S. T. — Herra Brynj. Péturssonar,
Grænl. — Privat. — Í 1. er., 2. 1., hefir fyrst staðið „hreina",
en verið strikað yfir það og sett „glatt og" fyrir ofan.

Það er ekki fyllilega ljóst, hvað Jónas hefir átt við i
þess-um vísum, einkum hinni fyrri, en rétt mun til getið af dr. Páli
E. Ólasyni, að „alsherjai’goðinn" hafi verið Bardenfleth
kammerherra, og að átt sé við umsögn hans nokkura á 20 örkum
(skrifuðum), sennilega um alþingismálin; þau heyrðu undir Br.
P. til undirbúnings sem fulltrúa i rentukammerinu. Geta má
þess einnig, að Br. P. skrifaði grein um alþingi í Fjölni, VII.,
110—136 (sbr. Fundabók Fjölnisfél., 15. og 17. fund, 1844 (27.
Apr. og 9. Mai), sjá Eimr., 33. ár, bls. 182—83. — Carl Emil
Bardenfleth (f. 9. Mai 1807, d. 3. Sept. 1857) varð hér
amtmað-ur 1837 og síðar stiftamtmaður. Fór héðan 1841 og varð
stift-amtmaður á Fjóni, en var þó hér aftur sem konungsfulltrúi á
fyrstu tveim þingunum (1845 og 1847). Var merkur
stjórnmála-maður og ráðherra.

„berum", svo í ehr., s. s. „börum" (þ. e. hjólbörum).

Bls. 179—181. — TIL GÍSLA. — Ehr. á lausu blaði (st.
21 X 13 cm) í K. G. 31 a. — Líklega frumritað uppkast og aldrei
skrifað upp né sent Gísla, — Thorarensen. Kvæðið virðist vera
sett saman í Sórey eða nokkru eftir að Jónas var kominn þaðan
aftur; það er bágt að vita, við hvað er átt, og sumt mun vera
út í loftið, — Absurd-Komik, sem þeir nefndu það. — En Ijóst
er, að þessar gamanvisur eru skopstæling af kveðskap rimara
og leirskálda.

Bls. 181—182. — HUGNUN. — Tvö ehr. eru til i K. G. 31 a;
annað er skrifað á laust blað, sem er raunar sendibréf eða skeyti
frá Brynjólfi til Jónasar, ódagsett, en vafalaust frá sumrinu
1844; hitt er í sendibréfi frá þeim Gisla Thorarensen og Jónasi,
sjá II. b., bls. 190; má vísa til ummæla Jónasar í bréfinu til
skýringar á kvæðinu; sbr. einnig aths. við bréfið, og e. fr. kvæðið
til Gisla hér fyrir framan, bls. 134, með aths. á bls. 368 *). Það

*) MeC þvi kvætSi, en ekki þessu, svaraði Jónas Gisla, er hann
sendi .Tónasi ljóíSbréfiö til mófiur sinnar. Sjá Sunnanf., XI.. 2S.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0395.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free