- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
403

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 403 —

Bls. 2U1—2US. — JULESANG FOR BØRN. — Ehr. í K. G.
31 b I, 28. kv.

Bls. 21*3. — IMPROMTU PAA BAL. — Ehr. í K. G. 31 b
I, 30. kv.

Bls. 243—245. — SERENADE. — Ehr. í K. G. 31 b I, 31.
kv. Fyrirsagnarlaust. Kvæðið er að líkindum ort til Christiane
Knudsen, sbr. bls. 324, fyrri hluta árs 1831. — Jónas varð :njög
snortinn af fegurð hennar og var tíður gestur á heimili hennar
þetta ár og fyrri hluta næsta árs, en síðan fór hún til
Vest-mannaeyja og hann nokkru síðar til Hafnar.

Bls. 245—246. — DEN 26. MARTII 1831. — Er skrifað á
smáörk i Lbs. 343, fol., I, sem er ýms kvæði, komin frá Bjarna
amtmanni Þorsteinssyni. Lagboði er við: „Mel.: Vær du vor[t]
Selskabs Skytsgud [inde] etc.".

Regner Christopher Ulstrup var danskur, f. 1793. Var
sýslu-maður i Skaftafellssýslu 1821—24, settur landfógeti og
bæjar-fógeti i Reykjavik 1828 og skipaður i þau embætti 1832. Jónas
var aðstoðarmaður hans frá þvi að hann útskrifaðist úr
Bessa-staða-skóla og þangað til hann sigldi. Ulstrup fór utan 1835 og
andaðist erlendis næsta ár. Sbr. e. fr. Sýslumannaævir, IV.,
197—98 og 667.

Bls. 246—247. — SOLHVERV. — Tvö ehr. til, í K. G. 31 b I,
33. kv., og á smáörk í J. S. 401, 4to. E. fr. er uppskrift í Lbs.
343, fol., I. — Á báðum smáörkunum, sem eru sennilega frá
samkvæminu þennan afmælisdag, er settur lagboði: „Mei.:
Dannevang med grønne Bred".

Wilhelmine Krieger var systir Kriegers stiftamtmanns (sjá
bls. 239 og 402); hann hélt mikinn dansleik á bessum
afmælis-degi systur sinnar og var þar yfir hundrað manna, segir Jóhann
Halldórsson i bréfi til Magnúsar Eirikssonar 25. Febr. 1832, —
Lbs. 303, fol.

Bls. 248—249. — TIL LILLE MARIE MAACK. — Prentað
eftir afskrift á stöku blaði (hálförk) i Bmf. 13, fol. ■— Kvæðið
er prentað áður i Óðni 1910, bls. 88, eftir annari afskrift. Þar
er ártalið i fyrirsögninni 1841. — Þessi stúlka var fjögra ára
(eða 5 1841); hét Marie Bothilda Jacobine og var dóttir Peters
A. Maacks, verzlunarstjóra i Reykjavik, og konu hans, Þóru
Ein-arsdóttur snikkara Hannessonar (sbr. bls. 251—252 og 404).
Marie Maack varð falleg og myndarleg stúlka. Hún giftist
Þor-steini Guðmundssyni, síðar kaupmanni á Akranesi. Sonur þeirra
var séra Pétur A. Maack, prestur að Stað i Grunnavik, d. 1892.
Frú Marie komst til hárrar elli, d. 1918. Hún geymdi ávallt
frum-rit Jónasar, en nú er það talið glatað.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0413.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free