- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
402

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 402 —

ehr. er eins og hér, og hefir Jónas búið til það heiti á kvæðinu,
gefið stúlkunni þetta gamla nafn með tilliti til fortilveru
henn-ar. Frumkvæðið heitir „Sjælevandring". Það kom út í „Gæa 1845,
s. 363", og hefir Jónas skrifað þessa tilvitnun við hliðina á
fyr-irsögn sinni. — P. L. Møller var útgef. þess tímarits; það kom
út 1845—47. Hann var góður kunningi Gríms Thomsens og hefir
þvi sennilega kynnzt fleiri löndum i Höfn.*) Hann var vel
hag-mæltur, en sérstaklega kunnur sem fagurfræðingur og ritdómari..
Hann var f. 1814; dó í Rúðu 1865, aumur og einmana, eftir að
hafa búið við bágustu kjör um 15 ár í Parísarborg.

Bls. 237. — Á DÖNSKU. — Til eru, svo kunnugt sé, nær 20
ljóðmæli á dönsku eftir Jónas og eru þau sett hér í sérstaka
deild, bls. 239—259. Hið fyrsta er frá fyrsta sumrinu, sem hann
var stúdent, hið síðasta frá síðasta vetrinum, sem hann lifði.

Bls. 239. — DEN 19. JUNI 1829. — Ehr. í ljóðakverinu K.
G. 31 b I, 23. kv. Kvæðið er sennilega gert fyrir samsæti, sem
Krieger stiftamtmanni hefir verið haldið, nýkomnum. — Hoppe
stiftamtmaður var á förum, sbr. kvæðið, sem Jónas orti til hans,
bls. 29—31, með aths. á bls. 325—26.

I þessu o. fl. kvæðum sínum á dönsku notar Jónas stuðla og
höfuðstafi eins og i alislenzkum kveðskap.

í 1. er., 4. 1., er í ehr. „gennembløde".

Lorentz Angel Krieger var f. 1797 af danskri
hershöfðingja-ætt. Hann var skipaður amtmaður yfir suðuramtinu og settur
stiftamtmaður 17. Jan. þetta ár; skipaður stiftamtmaður 1831.
Fimm árum síðar varð hann stiftamtmaður í Álaborg og fór
utan 1837, en veiktist þar brátt og dó næsta ár. Var ágætismaður.
Um hann og afskipti hans af stjórnmálum vorum sjá Fjölni, I.,
64—65, og IV., 47—48, Sunnanp., 3. árg., 117—19, Bréf Tóm.
Sæm., bls. 184, og Ævis. J. Sig., II., 49—51 og 76—77.

Bls. 239—241. — VED EN FEST I REIKEVIG O. S. FRV.

— Ehr. í K. G. 31 b I, 25. kv. — Þau Ferdinand prins og
Caro-line, dóttir Friðriks 6., voru gefin saman 1. Ag. 1829. Hefir þessi
hátið í Reykjavik sennilega verið haldin þann dag. — Sbr. Skírni
1830, bls. 59—64. — Frederik Ferdinand var f. 1792 og dó 1863;
hann var sonur Friðriks erfðaprins, bróðir Kristjáns 8. og því
erfðaprins frá 1848, en varð ekki barna auðið. Friðrik 6.,
tengda-faðir hans, og hann voru bræðrasynir. Hann var hershöfðingL

— Caroline dó 1881.

*) Sbr. Andvari, XXIII., 4—5. — í 5. árg. af Gæa, sem kvæöiS
er I, er grein um Bjarna Thorarensen eftir Grím.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0412.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free