Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 4 —
að leggja saman algebraisk brot; til allrar ólukku
voru þau samnefnd, svo það var ekki annað við þau
að gjöra en skrifa upp brotin aftur eins og þau
komu fyrir og setja þann sameiginlega nefnara
undir. Þetta var auðgjört og fljótt, svo Gunnlögsen
segir eitthvað á þá leið, að sér hefði orðið óvart að
låta hann fá svona létt dæmi. Þetta held ég
Justitiarius hafi þótt eitthvað skrítið, — nokkuð var það,
að hann skellihlær þar upp yfir sig og setur upp á
sig þær skringilegustu sérvitringsfettur, sem Álfur
hefði trauðlega eftir leikið. En nú tók ekki betra
við. Þar kemur annað dæmið, sem Justitiarius á að
sýna list sína á; hann fer til að leysa, en verður í
býsna miklu handafumi, svo það sem fyrst kemur
á töfluna var öfugt c (o!!!). Þennan staf þekkir
ekki Gunnlögsen og spyr í einfeldni, hvað þessi
fígúra hafi að þýða. Hinn bregzt undarlega við, og
spyr aftur á mót, hvort hann sé ekki farinn að
þekkja c. Gunnlögsen kveðst ekki hafa vanizt því
svona. Þá sansaði Justitiarius sig (annars efast eg
ekki um, að hann myndi hafa gjörzt býsna
undir-furðulegur og látið ekki lengi bíða að snúa sér
við og spyrja: „Hvorfor?"). Þetta held ég
biskupn-um muni hafa þótt kátlegt; hann fór að brosa
smátt. Það þurfti heldur ekki meira, því þegar
J. sá það, skelldi hann upp yfir sig i annað sinn
reglulegan tröllahlátur. Þú mátt fara á komedíu
ßvo oft sem vill, aldrei skaltu samt sjá eins skrítna
sjón og sjá hann, þegar hann gaf sér loksins
and-rúm til að þurka út þetta ógæfusama, öfuga c. Allir
hlógu, og ég man það meðan ég lifi. Fyrir þessa
frammistöðu og margt annað því um likt var hann
gjörður að supremo, og í krafti af þessari
upp-hafningu er hann líklega væntanlegur út um hafið.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>