Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
komin bréfin þín. Blessuð verði líka eplin þín öll
—; fyrir þau þakka ég þér líka, en þó öllu fremur
fyrir þína vináttu; hana get ég með öngvu borgað,
því mín vinátta er svo lítils verð; en það er ekki
mér að kenna og þess vegna veit ég, góði Tómas,
þú lætur þér nægja með hana; — ég skal ekki
hætta að elska þig.
Það, sem ég get sagt þér af mér, er ekki
mik-ið. — Guð veit, vinur, hvort við sjáumst meir. Mitt
æfintýri er nefnilega svoleiðis: Ég ætlaði mér statt
og stöðugt í sumar að brjótast í að elta þig; en ég
held forlögin vilji það ekki. Statt og stöðugt var
ég búinn að ásetja mér að taka peningalán og
kæra mig hvergi, og í þeirri von, að það myndi
slarkast af, fór ég til gamla Jóns á
Böggvisstöð-um og beiddi hann að lána mér peninga. Hann
sagði, að ef hagur sinn ekkert umbreyttist til árs,
skyldi hann lána mér 50 a 60 specíur, en sagðist
vera á glóðum, að kerling sín færi að deyja, og þá
yrði búinu skipt til helminga, allt svo mætti hann
ekkert missa, ef svo færi. (Það var ekki heldur
nein von til, því hann á ekki meira en hér um bil
60 jarðir). Mér þótti þetta allgott, og hélt ég víst,
að kerla myndi skrölta af til vorsins. En viti menn!
Fjandinn sótti hana um nýársleytið, og gamli Jón,
barnlaus, má náttúrlega ekkert missa af
reytun-um. Svona er það þá vaxið; ég hefi öngva peninga
í höndunum og ekki von um framvegis að fá; en
af því jaínframt mér allt af býðst sæmilega góð
forþénusta hjá landfógeta Ulstrup, held ég, að ég
freistist til að sæta því. Hvernig sem þetta annars
fer, veit ég þú manst til mín; — kann ske komi ég
líka einhvern tíma að finna þig.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>