- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
25

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 25 —

TIL FINNS MAGNÚSSONAR.

Staddur í Reykjahlíð, 22. dag Júlí-m. 1839.

Allrahæstvirti, elskulegi herra prófessor!

Nú er ég hér kominn fyrir 5 dögum og er þegar
búinn að rannsaka dikið, sem vellur af eldi og
brennisteini; á föstudaginn var ior ég upp á Kröflu
og niður í skvompurnar vestur undan henni, sem
all-ar heita einu nafni „Viti"; datt mér þá í hug
Egg-ert Ólafsson og þeir félagar, þegar þeir voru að
kraka hatt Bjarna Pálssonar upp úr einum versta
og voðalegasta pyttinum. Ég kom á Akureyri 18.
d. næstl. mán.; hefi ég ekki síðan setið um kyrt
nokkurn heilan dag, að einum rigningadegi
undan-skildum, en allt af verið á ferðinni og oft
fylgdar-laus. Nú er ég búinn að fara yfir mikinn hluta af
Vaðlasýslu, og það af Þingeyjarsýslu, sem er
fyrir vestan mig; hefi ég á þessum flækingi hitt
eitt-hvað 16 presta og prófasta og voru þeir sumir
harðir í horn að taka; — á tveim stöðum hefi ég
sett aðra menn, félagsins vegna, í prestanna stað.
Nú er mér sagt að sunnan, að biskup vor sé búinn
að rita prestum meðmælingarbréf og skora á þá að
veita félagi voru drengilega liðveizlu; vona ég, að
það muni hrífa. Ég kom í Leyningshóla á ferð minni
fram að Úlfsá, og sá þar Völvuleiðið, svo kallaða;
gramdist mér að sjá, hvernig því var umturnað.
Rúnasteinninn forni er brotinn og veit ég ekki, hvaða
skelfilegan óláns-klaufa, þrælsterkan, hefir þurft
til þess, því þetta er stóreflis bjarg. Rúnirnar eru
vart lesandi, svo eru þær máðar, en að steinn þessi
sé úr heiðni, ræð ég meðal annars af því, að á hann
er höggvinn, þversum fyrir ofan letrið, dálítill kross,.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free