- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
26

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 26 —

sem ég álít vera Þórs-hamar. Ég var þar i ofbjörtu
sólskini og stirndi svo mikið á steininn, að ég gåt
ekkert glöggvað með fullri vissu, en séra Kröyer
lofaði mér að reyna til að draga þær (rúnirnar)
upp seinna og senda yður. Rúnastein fann ég i
Grenjaðarstaða-garði, og sendi ég yður afskrift af
honum, af því ég man ekki, hvort þér hafið hann
áður, þó það sé líklegt; frétt hefi ég líka til steins
á Ljósavatni, en hann kvað vera brotinn og annar
parturinn kominn einhvers staðar í vegg; ég skal
fara þangað og hafa hann uppi á leiðinni til baka.
Þegar ég var frammi í Eyjafirðinum, frétti ég, að
maður þar á einum bæ fyrir handan Eyjafjarðará
hefði fundið spjót silfurrekið í moldarbakka
fyrir ofan Möðruvelli; brá ég þá undir eins við og reið
þangað, en kom of seint, þó skammt væri um liðið;
hann hafði farið með blaðið í eld, og slegið það til
að framan og hert aftur, til að vita hvernig járn
væri í því; 2 silfurhólkar höfðu verið á skaftinu;
annan þeirra var hann búinn að rífa allan sundur,
til að hafa brotin til kveikinga; hinn var heill, og
hann keypti ég og yfirborgaði hann af ásettu ráði,
til þess að færa manninum heim sanninn um það,
hvað óviturlega hann hefði farið að ráði sánu, las
svo yfir honum dálitið um leið, og bað hann að
leita betur þar sem spjótið væri fundið. Frétt hefi
ég hér til sverðs, sem fundizt hefir fyrir fám árum
inni á Mývatns-afrétti; það hafði verið ótrúlega lítið
ryðétið, og svo gott vopn, að það lét sig ekki, þótt
gangnamenn, sem fundu það, hjyggju því af öllu
afli í steina. Það var síðan sent til kanselliráðs sál.
Björnsens, skömmu fyrir dauða hans, en hvað síðar
hefir orðið um það, hefi ég ekki enn getað spurt
upp. Enn hefi ég komizt yfir brot af einhverju

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0034.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free