- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
39

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 39 —

menn eru líka vandfengnir til að halda
dagbækurn-ar? Félagið verður í þessu tilliti að leita til
prest-anna, og fá nokkra þeirra í lið með sér; þeir eru
allir í vísindamanna tölu, og er þá hvort tveggja,
að þeir mega þykja færir um að leysa þetta starf af
hendi, enda öll líkindi til, að þeir, sem til þess yrðu
kvaddir, myndu, hver um sig, fúsir til að leggja fram
þenna skerf til framkvæmdar vísindalegum tilgangi.
Þess vegna ætti að kjósa til þau prestssetrin, er bezt
þykja liggja við, sakir afstöðunnar, og biðja
prest-ana á þevrn að takast þetta starf á hendur; ætti
síð-an þetta að verða að nokkurs konar vísindalegri kvöö,
svo að hver prestur fram af öðrum, er þar sæti,
héldi áfram veðurbókinni.

4. Til hægri verka fyrir þá, er á síðan ættu
að nota veðurbækurnar, væri áríðandi, að þær yrðu
hver annari sem líkastar að allri niðurskipan, og
inyndi því bezt, að peir, sem ætla að halda þær,
fengju allir í fyrstunni samhljóða fyrirmynd
(Schema), að lo.ga þær eftir; ætti hún að vera sem
einföldust, og þó greinilega fyrir komið; en þeir, er
veðurbækumar héldu, ættu á hverju ári að senda
þær félagsdeildinni, er síðan varðveitti þær allar
samt í skjalasafni sínu.

Loksins vil ég geta þess, að mér er kunnugt,
að einstakir merkismenn hafa haldið slíkar
veður-bækur að undanförnu (t. a. m. séra Jón Jonsson,
nú prestur til Möðruvallaklausturs, er nú mun
hafa haldið þeirri iðn um 60 ár), og er það
athug-unar vert, hvort félagið ætti ekki að grennslast
eftir þessu betur, og reyna til að útvega sér af þeim
hinar merkustu, enda þótt nokkru yrði til þess að
kosta.

Ég þykist fyrir mitt leyti sannfærður um, að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0047.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free