- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
38

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 38 —

brjótast í að koma slíku til vegar, því bæði er það,
að verkfæri þau, er þurfa til slíkra rannsókna, kosta
töluvert, og menn eru vandfengnir til að takast það
starf á hendur; enda hefi ég nokkra von um, að
eitt-hvað verði séð fyrir því úr annari átt. — En mér
hefir dottið annað í hug, er mér virðist félagið gæti
komið til leiðar, sér að kostnaðarlausu, og mætti þó
ekki að síður koma að töluverðu liði, þegar fram
líða stundir. Ég vil félagið komi því til leiðar, að
dagbækur yfir veðráttufarið verði haldnar
eftirleið-is, eins víða um landið og nauðsyn þykir til bera, og
að þær kovii síðan jafnóðum í vörzlu félagsins.

Ef hinni heiðruðu félagsdeild þykir þetta nokkru
skifta, myndi það réttast að låta nefnd manna
taka til yfirvegunar, hvernig þessu gæti orðið
hag-anlegast fyrir komið. Ég þarf því ekki annað en
einungis að benda til nokkurra atriða þar að lútandi,
svo betur megi sýnast, hverju ég fer fram.

1. Þessar dagbækur yfir veðráttufarið þyrftu
að vera haldnar á svo mörgum stöðum, að ráða mætti
af samanburði þeirra, hvernig viðrað hefði í hvert
skipti á öllu landinu; og þar eð nú fjallgarðar þeir,
er skipta héruðum, og átt sú, er þau horfa í til hafs,
skiptir einnig oftlega veðráttu þeirra, þykir ekki af
veita, þótt veðurbækur væru haldnar í öllum hinum
stærri héruðum, er svo eru aðgreind af landslagi og
afstöðu (de större Flodgebeter), og sumstaðar bæði
við sjó og til fjalla.

2. Það er enn fremur áríðandi, að slíkar
veð-urbækur séu samfleytt haldnar i sömu stöðum. Þær
mættu þess vegna ekki vera einskorðaðar við neina
einstaka menn, er oft má vera, að flytji sig
búferl-um, heldur við ])á staði, er hentastir þykja.

3. En hvernig ætti nú að koma því við, þar sem

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0046.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free