- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
41

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 41 —

ur hægt að hreyfa mig, fer ég eitthvað af stað með
Steinstrup seint í Júní; hann fer vestur og Sch.
austur. Heilsaðu öllum; ég vona þú fáir betra bréf
með næstu ferð.

Þinn elskandi

J. Hallgrimsson.

TIL J. STEENSTRUP.

(Vorið 1840).

Ég er lasinn, kunningi góður, og hefi tekið inn
sóttar-meðal, og verð að sitja heima og tefla við
páfann. Ég verð því að biðja þig að afsaka mig,
þangað til á morgun.

Þinn

J. Hallgrimsson.

Her har du din islandske Lektie for i Aften!

TIL FINNS MAGNÚSSONAR.

Reykjavik, 13. Júni 1840.

Allrahæstvirti, elskulegi herra etatsráð!

Ég má öngvan veginn låta tækifærið hjá liða,
svo ég þakki yður ekki sem bezt fyrir elskulegt
tilskrif með vorskipum og umönnun alla fyrir mér,
sem komið hefir að svo góðu haldi. Ég er nú fyrir
nokkru algjörlega kominn á ról og skriðinn svo
saman, að ég er búinn að afráða að dragast eitthvað

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0049.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free