Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 42 —
af stað nú svo sem að vikufresti, og låta guð ráða,
hvað langt ég kemst. Ég hefi nú sameinað mig við
Steinstrup; förum við fyrst upp í Krýsuvík, þaðan
yfir Ölves, Grafning, Grimsnes etc., og
Þingvalla-sveit, til Borgarfjarðar og þaðan vestur eins langt
og viða sem sumarið endist til. Mér er það tvöfaldur
hagnaður, þvi bæði sparar það mér fylgdarmann
stöðugt, sem ég hefði heldur ekki getað kostað mér,
þvi ferðalög eru hér dýr, og svo er hitt ekki síður,
hvað miklu meira lærist, þegar tveir eru saman, og
það þótt félagi minn ekki væri Steinstrups
jafn-ingi, enda kemur honum vel á hinn bóginn, —
þótt aldrei væri nema i Krýsuvík, að ég hefi áður
grannskoðað námana fyrir norðan, sem hann fær
nú ekki að sjá. Það helzta af þvi, sem ég hefi
unn-ið Bókmenntafélaginu beinlinis i hag, siðan ég fór
að hressast, er einkum það, að ég hefi verið að
rita nokkurs konar bok yfir prestaköllin hér á
landi, og hefi ég mest notað til þess skýrslur
prest-anna sjálfra, sem þeir gáfu i fyrra eftir biskups
boði og undir embættiseið. Ég byrjaði á
Vaðla-sýslu og er nú kominn i kring austur fyrir og
hing-að suður, og held nú áfram hvað ég get, þangað til
ferðin byrjar. Svo þérfáið nokkurs konar hugmynd
um, hvernig þetta verk litur út, skal ég senda yður,
eem sýnishorn, afskrift af einhverju styzta
brauð-inu, og er það þá eins og þér hafið séð bókina alla,
því þótt skýrslurnar hafi verið margbreyttar, hefi
ég fært þær allar til eins skipulags.
Þetta kadetta-skip kom núna svo flatt upp á
mig, sem aðra fleiri, að ég get ekki skrifað til
Rentukammersins og direktionarinnar for Fondet
ad usus publicos. Ég verð því að biðja yður, herra
etatsráð, að gera svo vel að flytja báðum þessum
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>