- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
58

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 58 —

Hróarskeldu, er snerta íslands málefni, og veit ég
til þér fáið þær. Þess utan hafa þeir tekið Grimi
tak í Kjøbenh.-p. og eins í Fædrelandet, því þeir
hafa orðið hræddir við skattafrumvarpið. Þið fáið
það nú meðal annars að bræða á næsta fundi og
þá um leið frumvarp frá séra Pétri prófasti um,
hvernig bæta skuli kjör prestanna hér í landi, og
jafnframt hafa gåt á þeim betur en hingað til
hefir viðgengizt. Sagt er, að Bardenfleth muni koma
að sumri í kommissiónina, enda vænti ég þér
haf-ið fengið frá honum bréf. Rothe er dauður úr
há-skóla-stjórnarráðinu, og gamli Engelstoft settur í
hans stað; er nú sagt, að útkljáð muni verða
eitt-hvað um skólann í vetur. Danir eru farnir að verða
eftirgangssamir um stjórnarbótina, og er nú
jafn-vel haldið, að konungur megi bráðum låta undan,
svo ekki verði verra úr. Ég vildi óska, að þingið
okkar yrði vel komið á, fyr en það kæmi fram.
Hvernig lízt yður nú á kringumstæðurnar?, og
hvað viljið þér leggja til um samninginn við secr.
og um ritið yfir höfuð? Hafið þér fengið næði til
að rita nokkuð enn sjálfur?, eða þá að búa undir
eitthvað af sýslulýsingunni? Ég er nú sem stendur
í óða önnum að gangast fyrir því, að veðurbækur
verði framvegis haldnar um allt land. Það er meira
vert en margur skyldi hugsa i snöggu áliti. I gær
kom ég ofan af Akranesi; hafði ég orðið þangað
sam-ferða cand. Kristjanson, en hann var eftir boði
Cancellíisins að rannsaka, hvernig stæði á 2
und-irskriftum undir bænarskránni góðu, þvi Grosserer
Knudtzon hafði skrifað i Rentukammerið, og
bor-ið þar fram, að þær væru „falskar". Séra Hannes
hafði ritað bæði þessi nöfn, og kom það fram í
rannsókninni, að báðir mennirnir könnuðust við að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0066.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free