Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 88 —
hólmi. — Ljót er sagan af Kolbjarnarhelli; ég held
það ætli að verða tóm Loka-lygi. Ég var á
dögun-um uppi í Grákollugiljum á Holtavörðuheiði, að
skoða þar surtarbrandslög, og sendi ég þá, meðan
viðstaðan varð, áreiðanlega 2 menn norður-undir
Skúta, fundu þeir verra en ekki neitt. Komist ég
í Hrútafjörðinn, eins og ráð er fyrir gjört, skal ég
leita af mér gruninn þeim megin.
Langt of litlir voru þeir peningar, sem ég fékk
til að fara langferðina austur um landið; ég legg það
ekki upp með minna en 500 rd., því ég vil heldur
ekkert fara en ferðin verði ’ónýt af efnaleysi. I þá
ferð þyrfti ég 2 menn og helmingi fleiri hesta en ég
hefi í sumar; því með svo mikilli yfirferð er
nauð-synlegt að vera að öllu laus við lestabaslið sjálfur.
Nú hjálpa ég mér með einum pilti. Annars er ég
ánægður með það, sem komið er af ferðinni, og
held ég varla von sé á, að ég skyldi hafa meiru
af-kastað en gjört er. Verst er, að í haust verð ég
verri en snauður, því auðsjáanlega get ég þá ekki
borgað fylgdarmanninum kaup sitt, nema með því
móti að selja alla hestana, og ef til vill nokkuð af
öðrum útbúnaði með. Steenstrup mætti þekkja það
bezt frá í fyrra. Sendingar mínar til Museerne, sem
nú eru orðnar 10 eða 12 kassar úr ýmsum stöðum,
hafa líka, eins og geta má nærri, kostað mig
tölu-vert. En vera má ég fái það uppbætt seinna. Ég má
ekki vera að skrifa, því nú á að svifta tjaldinu.
Með ást og virðingu.
J. Hallgrímsson.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>