- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
89

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 89 —

TIL KONRÁÐS GÍSLASONAR.

Hrauki við Bjarnarhöfn,
einhvern tíma í Ágúst 1841.

Elskulegi Konráð minn!

„Skuggabaldur úti einn
öli daufu rennir;
skrugguvaldur, hvergi hreinn,
himinraufar glennir".

Þykir þér ekki von, þó ég gerði þessa vísu í
morgun, þegar ég vaknaði í poka mínum og
hrein-bjálfinn var allur rotinn, fyrir 4 daga stórrigning,
svo hárin lágu öll laus utanum mig, það er að
skilja: af honum en ekki mér. Þér skilst, veðrið
muni vera dimmt o. s. frv., en ég get ekki verið
inni í bænum, því sýslumannskonan er allt af
að eiga sama barnið ; — guð hjálpi henni, vesæling!
— En meðal annara orða: Ég vænti, þú munir
eftir rostungnum aftan-við Grænlands-sögu hans
Kon-ráðs, föðurbróður þíns; — ég veit ekki, hvort þessi
rostungur er á bókunum hinna —, en víst er um
það, að á bókinni hans föðurbróður þíns stendur
ein einföld staka hjá rostungnum, efst á blaði
hægra megin; — hún er svona:

,,Þetta amphibión
er, að minni sjón,
ljótt og leiðinlegt,
leitt og óþekkt".

Var það ekki fallega sagt, kunningi! Ég hefi
núna bókina undir höndum, því Konráð býr hér í
kotinu efra, eins og þú veizt. —

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0097.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free