Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 106 —
Til FINNS MAGNÚSSONAR.
Reykjavik, 5. Október 1841.
Hæstvirti, elskulegi herra etatsráð!
Það hryggði mig mikið, þegar ég frétti þér
hefðuð verið sjúkur, þegar siðasta skip fór frá
Danmörku hingað til vor; en þótt ég nú voni
fylli-lega, að það sé þegar snúið til góðs bata, verð
ég samt að kannast við, að fyrir það fyrsta er
hver sjálfum sér næstur — ég meina það til mín
— og því næst vildi ég margs annars vegna, og
ekki sízt yðar sjálfs, vera glaður við að vita yður
sem lengst hraustan og glaðan og heilan á hófi
að starfa að vísindunum, og þá jafnframt dags
daglega að ávinna okkur og vísindunum heillir og
framkvæmdir, en sjálfum yður lof og dýrð um
aldir alda! Þetta seinasta skauzt nú svona út úr
mér; hamingjan veit, það er ekki nema einlæglega
meint, þótt það sé ekki sem laglegast orðað.
Viðbæti vantar yður við fornleifaskýrsluna
minu, en tvennt er nú að, — ég nýkominn og
skip-ið að ólmast af stað, enda er ég nú hálft um hálft
eins og kerlingin, sem vildi hafa nokkuð fyrir snúð
sinn. Mér finnst ég sé búinn að gera svo mikið, að
fornfræðafélagið ætti að gera mig að félaga
sín-um — kauplaust — og taka mig inn í
fornleifa-nefndina; — ég stend því að minnsta kosti nær en
séra Pétur, að honum ólöstuðum. Vilji það sleppa
þessu, en bjóða mér simpelt Honorar, þá þigg ég
ekki minna en 100 dali. — Ég hefi, satt að segja,
eytt meira til að gera það lítið, sem nú er gert.
Þó ég þá fái ekki neitt, mun ég samt eftirleiðis
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>