- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
107

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 107 —

gera það ég get, því efnið og augnamiðið met ég
mest.

Höfuðefnið af skýrslum mínum, eins og þær
koma — ég hef sent að vestan og norðan til yðar

— vildi ég biðja yður að meðdeila — rétt
munn-lega — landfræðinefnd hins ísl. Bókmenntafélags

— og það með: að að vestan, einkum úr
Snæ-fellsnessýslu, get ég gefið, nú orðið, merkilegar
upplýsingar um örnefni úr fornsögunum, — og
þá sjálfsagt fyrst og fremst Eyrbyggju, svo sem
kort eða „landlíkan" með hinum fornu nöfnum og
afstöðum, til að geta lesið hana rétt. Þetta ætti
þá líka, samkvæmt áforminu, að nota við
landlýs-inguna. Af brauðalýsingunum er ég albúinn með
Hólabiskupsdæmi hið forna. — Þó vil ég ekki
senda það nú með óvissri haustferð, þar sem ég á
ekki „afskrift" að gagni. í Skálholts-biskupsdæmi
vantar mig enn margar upplýsingar. — Af
fiski-fyrirspurnum mínum eru nú svörin farin að koma
inn. Með veðurbækurnar gengur nú forkunnar-vel,

— eða þá að minnsta kosti vonum framar, og er
nú að bera mig að ná hinum fornu, sem til eru. í
vetur byrja ég á náttúrusafni íslands. Það á nú
samt að vera í „svartholinu" (Caschjotten)
þang-að til skólinn kemur. Ég er ánægður með það
samt, því betra er lítið en ekki neitt. — Eitt verð
ég enn að segja yður: Einar nokkur á Mælifelli á
afskriftir af öllum sagnaverkum Espolins.
Félag-ið ætti að taka tillit til þess, því þá er ekki þörf að
afskrifa oftar, svo framarlega sem annaðhvort
hann eða ekkjan vilja selja. En lausum kvæðum
Espolins er ekkjan að låta safna — og ég bað
hana líka hið ítrasta að låta það ekki farast
fyrir. — Skýrslunni um félagsins atgjörðir hefir ekki

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0115.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free