- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
123

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

—< 123 —

TIL P. MELSTEÐS YNGRA.

Reykjavik, 10. Febr.m. 1842.

Sæll og blessaður, kunningi! ástar-heilsan.

Eki vænti þú vili finna mi út firi veg? Ég
ætl-aði að }>akka þér fyrir tilskrifið. Boðsbréfið er
inn-ani. Svo sem kvæði? Ég hefi nú, trúi ég, ekki neitt
til, nema þennan „dalmatiska"; ég býst við, þú sért
vel lesandi. Maður kemst ekki yfir fjörðinn fyrir
áraleysi, eins og þú munt hafa heyrt. Ég hafði
ætl-að mér að finna Þorgrim og þig í gær. Hvað er
lög-ferja? — stendur í stúdentaspurningunum, sem þú
og ég fáum frá biskupinum árið, sem kemur. (Það
er áralaus bátur, — ætla ég að segja; þú ræður
hvað þú segir). — Nú er að minnast á svartfuglinn.
— Hefirðu tekið eftir, að það eru tvö á honum
nef-in, annað styttra og annað lengra, það er að skilja:
sitt á hvorri tegundinni. Þú stingur hjá þér! —
Mér er sagt, að á vikivakanum hérna seinasta hafi
þeir viljað kaupa Chr. Hansen, sem þú þekkir, til að
taka hann i sundur! Þeir ætluðu að gera
,,Trom-mestikkere" úr fótunum, fiólin-strengi úr
görnun-um, falska túskildinga úr augunum, o. s. frv. —
Nafni minn gamli í Reykholti skrifar mér, og segir
mér að vara mig á henni „Skriflu", — hann Jarpur
minn sitji um að steypa sér ofan i hana. Ég skrifa
honum aftur, og spyr hann, hvort hann hafi ekki
heyrt talað um þessar Skriflur hérna syðra, þær séu
mér ekki öllu síður varuðarverðar. — Svo skrifar
nafni minn gamli i Reykholti mér, og spyr mig,
hvort ég ætli nú ekki senn að fara að spila út
fjark-anum? (liklega til að múka); ég skrifa honum
aft-nr, og segi, ég ætli að bíða, þangað til ég komi i

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0131.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free