- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
125

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 125 —

kasta því. Hitt máttu setja nærri hvernin sem þú
vilt; }jað verður ekki, hvort sem er, gerð nein rétt
skipun á þetta, sem er „ýmislegt". Lifðu blessaður
alla daga!

Þinn

J. Hallgrimsson.

Blöðin, sem liggja innaní, höfðu gleymzt hjá
Þorsteini.

TIL ÁRNA Ó. THORLACIUSAR.

Reykjavik, 23. Marz 1842.

Elskulegi, góði herra Thorlacius!

Þetta verður ekki nema til að heilsa og
kveðja. Vöggusyndin min gamla, að verða ætið
of seinn til alls, kemur lika ævinlega fram við
hverja póstferð. Ég hefði átt að skrifa yður
ræki-legt bréf, en nú getur ekkert orðið úr þvi. Fyrst
og fremst þakka ég yður samt gott bréf, eigi síður
en allt annað ástúðlegt. — Vænt þótti mér að
frétta, að þið „þreytizt ekki gott að gjöra";
eng-inn efi er á, að með kappi ykkar og nærgætni
hafið þið enn upp margar fornmenjar i sögusveit
yðvarri; slík er ekki til á landi hér i því tilliti; og
fallegt væri að sjá nýja útgáfu af Eyrbyggju með
korti eður landabréfi, þvi er hávaðinn af
örnefn-um þeim, er hún tilgreinir þar vestra, væru rétt á
sett. En þetta getur ekki orðið, nema með
grandgæfi-legri og „kritiskri" rannsókn, með söguna í hendinni,
og }>að er einmitt hæfilegt starf fyrir þann mann,
sem býr þar í grennd og hefir greind og atorku til

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0133.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free