- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
134

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 134 —

ið. Þið vitið ekki, ef til vill, hvað tré varðveitist
lengi í þurrum brunasandi. Ég hefi enn einn
rúna-stein frá Mælifelli. — En þér fáið framhald af
forn-leifaskýrslunni.

Ég hafði ekkert að skrifa yður með póstskipinu;
ég hafði aflokið mér í haust, eð var, þangað til ég
fengi aftur svar. Mér gåt ekki dottið annað í hug
en þér hefðuð eitthvað af peningum handa á milli
og handa mér; því hikaði ég ekki við að ávísa til
yð-ar. Ég skal vara mig í annað sinn. Verst féll mér samt
að vera orðinn svikari við Thomsen. Satt að segja
hélt ég fornfræðafélagið hefði honorerað mig með
50 dölum, eins og ég stakk upp á í fyrra haust, því
ég vissi ég átti það.

Ógn er ég langeygður eftir að sjá rúnaverkið
yð-ar, og svo kemur það, ef til vill, ekki til landsins í
vor. Hér er góð tíð, líklega yfir allt land, nú sem
stendur, og túnin orðin græn. Afli í meðallagi, að
kalla má, sumstaðar miður, sumstaðar betur. Allir
nafnkenndir lifa. Stjörnufræðin mín, eftir Ursins
pop. Foredrag etc., kemur úr prentsmiðjunni í
þess-um mánuði; hún held ég hafi tekizt nógu vel.

Lifið þér blessaðir, herra etatsráð.

Með ást og virðingu

J. Hallgrímsson.

Þar sem ég hefi farið yfir merkileg sagna-héruð,
t. a. m. hérað það allt, sem Eyrbyggja nær yfir, hefi
ég leitað upp hin fornu örnefni, — og stundum haft
nóg fyrir því. Ég sagði yður, trúi ég, í fyrra haust,
að ég reið inn með Álftafirði heilan dag við 7. mann.
Nú er ég orðinn svo fróður, að ég gæti t. a. m. búið
til „kort" fyrir Eyrbyggju og leiðrétt jafnframt
margt. Likt er að segja um þingstaðina fornu. Á ég

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0142.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free