- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
136

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 136 —

skilja við mig. Ég hefi sent ykkur dálitið frá
Reykjavik, báðum félögunum. Meira kemur seinna, ef gu5
lofar.

Kvefsótt og nokkur manndauði; að öðru leyti er
sumarið blessað á allan hátt. Ég er hér svo gjörstolinn
öllum tima, að ég kemst ekki til að skrifa neitt meir.
Yðar auðm. elsk.

J. Hallgrimsson.

Kveðju til Stprs., ef þér getið.

TIL K. GÍSLASONAR.

Eskifirði, 17. Okt. 1842.

Elskulegi Konráður minn!

Ég skrifa þetta með Gásinni annað hvort á
und-an eða eftir mér, svona til vonar og vara, karl minn.

Sjónum spanska útí enn
er eg að granska, bróðir!
þó farið sé nú að verða áliðið;

ferðbúinn, þegar
fjallatinda–foringinn mjúka leysir vinda
— og þótt eg jafnvel þyrfti að synda —
þýt eg af stað að hitta þig;
fantur! ,,biddu nú fyrir mig",
meðan ég er á haf að hrinda
hlunnadýrinu stóra.
Ora, róra! Oraróraróra!

Halldór hefir beðið mig að segja þér, að hann
hafi náð í kongsdótturina, og svo hitt, um kútinn,
sem þið vitið báðir; rétt svo þú gleymir því ekki.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0144.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free