- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
137

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 137 —

Hún ljósa þín hefir sagt mér, að þú hafir verið
fæddur í sigurkufli og kveðið níð í kuflinum og
pré-dikað trúarvillu í laugartroginu. — Er það nú satt,
ósköpin þau arna?

Svona sagði einn prestur: „Þetta guðspjall,
min-ir elskanlegir! er svo vit — vit —, já vit — vit —, núr
vit — vit-luftugt . . ."; hann var að snúa við hjá sér
blaðinu. Þetta skal nú ekki verða vitluftugra en
kom-ið er.

J. Hallgrímsson.

TIL PÁLS MELSTEÐS YNGRA.

Eskifirði, 18. Okt. 1842.

Elskulegi Páll minn!

Heldurðu ekki, ég sé búinn að sjá sveitina þína?
Ég hefi nú verið hér á slóðum síðan í miðjum
Sept-ember, grafið í sundur fjöll og hóla, og svo að kalla
búið um tíma í Hengifossárgili, veitt sjálfur silunginn
í Lagarfljóti, og séð orminn og margt annað þessu
likt. Svo er ég og ekki orðinn mjög ókunnugur
Græn-landi, því ég var hjá séra Beldring um tíma að
resti-tuera skrokkinn á mér eftir ferðavosið. Nú lifi ég hér
að lokum sem blóm í eggi hjá Christensen minum,
ferðbúinn, að kalla má, til Hafnar; biðurðu ekki að
heilsa kunningjunum? Nú held ég komi senn einhver
landlýsing; — ég er, eins og þú veizt, búinn að sjá
allt land, nema eitthvað af Langanes-ströndunum, og
veit ég þá lika, hvernig þær eru. Hvernig fór, meðal
annara orða, um sóknalýsinguna ykkar prófastsins?
Skyldi hún vera komin enn, þá mundu, blessaður, i

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0145.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free